25. nóvember 2009 klukkan 21:46
Já það er gott að vera harðsvífaður íslendingur sem kann ekkert betra en að svíkja útlendinga, ég meina þetta gera íslendingar best er það ekki?
Ekki það að við séum að svíkja þá í massavís en við komust allavegana að því að á öll söfn í eigu franska ríkisnins er frítt inn fyrir þá sem eru á aldrinum 18 -25 ára og eru með ríkisborgararétt í einhverju að aðildarlöndum evrópusambandsins.
Einföld leið til að komast frítt inn: Sýndu evrópska tryggingarskírteinið þitt, leiktu heimska útlendinginn og þú færð aðgöngumiða í hendurnar :)
Í dag fórum við á Louvre safnið og díses kræst hvað þetta er stór bygging, ranghalar út um allt, listaverk út um allt og fólk með myndavélar út um allt. Ég verð nú að segja að ég var ekkert ýkt spenntur fyrir þessu öllu saman og kanski má segja að ástæðan fyrir því hafi verið að allir skýringartextar voru á frönsku og vissi ég því lítið hvað ég var að skoða nema að ég skildi stundum frá hvaða ári hlutirnir voru. En fyrst maður var kominn þarna inn varð maður að kíkja á Monu Lisu og var þvílíkt margmenni að skoða hana þessa litlu "ljótu" konu sem er á einum veggnum þarna. Okkur Óskari fannst reyndar annað verk beint á móti henni mikið áhugaverðara því það var að minnsta kosti 50 fermetrar. En Mona Lisa er frægasta listaverkið á safninu og erum við búnir að sjá það. Check
En í gær fórum við uppí Eiffel turninn og það var skemmtilegt. Þetta er geggjuð upplifun að vera þarna uppi í þessu 120 ára stálmannvirki sem var reist fyrir heimssýningu og átti að sýna heiminum að frakkland væri í raun og veru heimsveldi. Eftir að hafa labbað upp tröppurnar á fyrstu hæðina, (aldrei labbað upp svona margar tröppur til að fara á fyrstu hæð) fannst okkur við vera rosalega hátt uppi og vorum við þar í dágóða stund, á annari hæðinni fannst við líka vera geðveikt hátt uppi og varla að við hefðum verið í svona mikilli hæð áður. Svo lá leiðin uppá topp, og þá varð þetta fyrst geggjað. Við vorum öruglega í 3 - 4 tíma í þessum turni að dunda okkur við að gera ekki neitt og bara að dást að útsýninu.
En ég eiginlega nenni ekki að skrifa meira núna og segi ég þá bara
...þar til næst