Hey ég sá sól
09. janúar 2008 klukkan 12:47
Já ég sit hérna í Keflavík að bíða eftir því að geta lagt af stað aftur í bæinn með vörur og ég held að kraftaverk hafi komið hérna. Ég sá sól í Keflavík í fyrsta sinn síðan ég veit ekki hvenær. Vá það er skrýtið að sjá hana núna, síðustu mánuði hefur yfirleitt bara verið rigning og rok og skýjahula hérna yfir en þó aðalega bara rok og rigning:) Voðalega finnur maður hvað sólin gleður mann svona í miðri viku. Sólin bjargaði deginum.
En alveg hreint ótrúlegt hvað einn svona linkur á b2 lætur marga skoða síðuna hehe. En ég held að málið sé að fá bara Tarantino til að vera sölumaður í næstu flugeldasölu.
Við erum allavegana búin að ganga frá öllu því sem viðkemur flugeldasölu niðrí hjálparsveit ohh hvað það er þæginlegt að þessi törn sé búin, nú er mar bara afslappaður á kvöldin og er ég að spá í að skella mér með nokkrum félögum mínum bara á Akureyri til að slappa af og fara á bretti og svona. Ég held að það verði nú samt eithvað skrautlegt að fara í bretti því ég hef bara einu sinni farið á bretti og það eru 2 ár eða eithvað síðan ég gerði það síðast, ég reyndar datt ekkert allt of oft þá en ég hlýt að detta oftar núna :)
En hvað því líður þá held ég að allt sé bara í geggjuðum gír núna.
...þar til næst

Jakob Guðnason