Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, House in a Hill Funny Images, Street artist defaces bikini advertisement Funny Images, Art made with rocks! Funny Images, A very straightforward bumper sticker Funny Images, Derp in a swing Funny Images, If children’s drawings were made into toys

Klukkan

Djöfull er ég góður á snjóbretti

14. janúar 2008 klukkan 00:39
Ég er sko ekkert að grínast með það að ég held að ég sé undrabarn á snjóbretti því ég fór um helgina á snjóbretti í annað skipti á æfinni í svona fjalli í alvöru skíðabrekku. Og ég var ekkert að gefa hinu snjóbrettafólkinu eftir þangað til að ég hrundi svo gjörsamlega á andlitið í einu stökkinu og meiddi mig nú pínu. Þá ákvað ég bara að það þýddi ekkert fyrir mann eins og mig sem væri ekki alveg sá klárasti á brettinu að vera ekkert að reyna að stökkva svona og fór bara að bruna niður brekkurnar. Þangað til að kabúmm ég hrundi á hausinn á svona 40 km/klst hraða og skall með hausinn í ( svosem enginn skaði skeður með hausnum) en fucking hnéð á mér er í rúst. Ég get varla labbað. Eftir það fór ég nokkrar rólegar ferðir niður og mér fannst það ekkert gaman því að allir hinir sem ég var með voru alltaf lang langt á undan mér og komust á undan mér aftur í stólinn. Þá fór ég líka bara og fékk mér kakó og las fréttablaðið.

"En svona fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um hvaða ferð ég er að tala um þá fór ég á Akureyri um helgina með Eiríki, Eiríki og Eiríki, Eddu, Gísla, Írisi og Heiðari og var planið að renna sér eins oft niður brekkurnar í Hlíðarfjalli og hægt var og svo að detta í það eins mikið og hægt var um kvöldið. Við fórum á föstudaginn á Land Rover Discovery sem B&L eiga norður og mikið djöfull var mikið pláss fyrir okkur feitabollurnar sem sátum afturí, vorum kominn eithvað um miðnætti norður og fórum bara snemma að sofa. Vöknuðum svo snemma um morguninn til að fara í fjallið og þið vitið hvað gerðist þar."

Eftir ég var búinn að drekka kakóið mitt og lesa fréttablaðið komu svo hinir fljótlega og tjáðu mér það að við ætluðum að skella okkur í Akureyralaug og fara svo á Greifann og þar fékk ég mér 400 gr. steik sem heitir Besti bitinn og var þetta bara eitt besta kjöt sem ég hef smakkað og sagði ég óvart þegar ég pantaði að ég þyrfti pottþétt að fá ábót, og guð minn góður ábótinn sem ég fékk var 200 gr. steik plús stór kartafla en ég kláraði þetta nú með bestu lyst.
Eftir þetta var haldið í party hjá Hrafnhildi og félögum í íbúð sem Baugur á held ég og þar var djammað vel og lengi þangað til að hnéð á mér leyfði ekki meir og ég, Íris og Gísli fórum heim og hinir fóru í bæinn.
Í dag var ég svo bara með Heiðari í bænum og fengum við okkur Brynjuís sem ég segi að sé ofmentnasti ís á landinu, og hitti systur hans og svona. Bara helvíti góð helgi fyrir utan 2 góðar byltur:)

...þar til næst
Jakob Guðnason
Eiríkur skrifar ...
 
Iss þú misstir nú af besta hluta djammsins... eða svo er mér sagt.

En annars ertu alveg að klikka á þessu ef þú dettur illa og meiðir þig á snjóbretti þá áttu bara að fara helmingi hraðar í næstu ferð.
14. janúar 2008 klukkan 00:43

Skrifa athugasemd

Könnun

Hvorum okkar saknið þið meira?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit