Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity. Funny Images, Friendships

Klukkan

Fer frá klakanum á föstudaginn

18. nóvember 2009 klukkan 00:58
Jæja þá er nú að styttast alveg svakalega í það að maður flytji frá Íslandi í nokkra mánuði. Þegar ég ákvað það að fara vinna í Austurríki virtist vera svo svakalega langt í það að ég myndi fara að það tók því ekkert að vera spá í þessu neitt en tíminn er eitt það skrítnasta sem ég veit um og hefur hann flogið alveg svakalega hratt frá mér,

Ég á eftir að gera allt áður en ég fer út. Ég veit tildæmis ekkert hvað ég þarf að taka með mér nema það að það verður eitthvað af fötum í töskunni, vegabref, tölvan og tannbursti, hvað meira á ég eftir að ákveða. 

Ferðaplanið lítur samt mjög vel út fyrir mig og Óskar, við byrjum á því að fljúga til París og verðum þar í viku og förum þaðan til Ítalíu. Þegar þangað er komið er ekkert ákveðið nema að fara til Sölden 11. desember.
Ég fékk áðan senda leiðarlýsinguna á því hvar við eigum að hitta Héléne í París og þetta var alveg 10 til 15 línur um lestir, strætó labb götur hús og allur pakkinn og ef ég fylgdi þessari leiðarlýsingu myndi ég enda á Starbucks við Moulin Rouge. Neðst í bréfinu stóð svo. "Ef þú skilur þetta ekki segðu þá bara einhverjum að segja þér hvernig þú kemst á Starbucks við Moulin Rouge þegar þú ert kominn út úr flugvélinni"

En nóg í bili ég þarf að horfa á nokkra þætti af Scrubs áður en ég fer að sofa og svo pakka öllu dótinu mínu á morgun svo ég geti notað fimmtudaginn í það að vinna í Skemmtigarðinum.

...þar til næst
Jakob Guðnason

Skrifa athugasemd

Könnun

Hvorum okkar saknið þið meira?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit