Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity. Funny Images, Friendships

Klukkan

Dagur 1

21. nóvember 2009 klukkan 10:58
Ég var búinn að blogga þvílíkt langa færslu í gær um fyrsta daginn okkar en það kom einhver villa í þessu kerfi og það datt allt út. En í grófum dráttum var ég að segja frá því þegar Óskar vakti mig með því að banka á gluggann heima, bjórinn í flugstöðinni, biðið á flugvellinum í París, pósthúsið sem Óskar sendi gítarinn sinn og snjóbrettið sitt, lestarferðirnar og fleira og fleira.
Þegar við mættum inn í París hittum við Héléne og fór hún með okkur heim til Caroline þar sem við fáum að gista alla vikuna.

Það er alveg ótrúlegt hvað frakkar eru góðir að elda því að við fórum út í búð með stelpunum og Agathe tók svona hálfa körfu af mat, og völla ( lesist með útlenskum hreim ) það var komin þessi dýrindis máltið. Og ég borðaði allt meira segja tómata með köldum mozarella osti.

En fyrsti dagurinn var bara mjög fínn og ætlum við að fara eitthvað að labba núna skoða eitthvað um í París.

...þar til næst

Jakob Guðnason

Skrifa athugasemd

Könnun

Hvorum okkar saknið þið meira?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit