Innskrįningar kubbur

Nżjast į HumorPix

Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity. Funny Images, Friendships

Klukkan

Bįtur, löggann, įfengi, stelpur.

22. nóvember 2009 klukkan 15:58
Þessi orð fara yfirlett ekkert vel saman, sérstaklega ekki þegar áfengið er komið með. En í gær var þetta ágætis blanda. Allt um það á eftir

En í gær röltum við Champs Elýsées í áttina að Sigurboganum eftir að hafa skoðað Operuna, Concorde og fleiri hluti. Eftir þennan göngutúr sem var býsna langur skelltum við okkur heim til Caroline til að skipta um föt því planið var að fara á eitthvað skiptinemadjamm um borð í bát á ánni í miðri París.
Þetta gekk allt eftir og á bátnum þekktum við fyrir aðeins einn mann og það er Sylvan félagi hans Óskars.
Um borð kyntumst við svo vinum vina Sylvans ágætlega og eftir að báturinn var búinn að sigla með okkur fram og til baka spurðu þau okkur hvort að við vildum skella okkur á alvöru næturlíf í París. Svarið var að sjálfsögðu já. Eftir að hafa reynt að komast inná nokkra Snobb staði fórum við inná Írskan pöbb. Þetta er sá alskrýtnasti írski pöbb sem ég hef farið inná því að þarna var fólk að dansa við RnB og fleira. En það var þó seldur Guinnes og við vorum í frábærum félagsskap.
Nú ertu öruglega farinn að pæla í hvenær löggan komi við sögu en það var rétt áður en við fórum inn á írska pöbbinn var ég að leika mér að halda jafnvægi á keðju bakvið Lour safnið og það var ekkert að falla í kramið hjá frönsku lögreglunni.

Eftir nokkra tíma dansandi var stefnan tekin heim á leið með viðkomu í Kebeb og frönskum og löbbuðum við Óskar 2 heim án þess að kíkja á kortið. Við erum farnir að þekkja París. :P

Jakob Gušnason
Gulla skrifar ...
 
Á Jakob minn Löggan í Evrópu er ekki eins umburðarlynd á uppátækjum landans eins og sú íslenska, þar er meiri virðing borin fyrir umhverfinu og almanna eign ólíkt því sem við eigum að venjast. Það er því vissara að vera ekki að fíflast mikið á almannafæri.
22. nóvember 2009 klukkan 18:23
Jakob Gušnason skrifar ...
Löggunni fanst ég samt vera góður í þessu. Hún vildi bara ekki hringja á sjúkrabíl :P
þess vegna mátti ég þetta ekki
22. nóvember 2009 klukkan 19:30

Skrifa athugasemd

Könnun

Hvorum okkar sakniš žiš meira?

Teljari

  • Heimsóknir ķ dag: ...
  • Žennan mįnuš: ...
  • Frį upphafi: ...

Leit