Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity. Funny Images, Friendships

Klukkan

Þreyttir og lúnir fætur

23. nóvember 2009 klukkan 18:52

Fæturnir er lúnir og við sitjum heima hjá Caroline núna að bíða eftir að hún komi að sækja okkur því við eigum að vera að fara í eitthvað skátadæmi í kvöld. 
Gærdagurinn var í rólegri kantinum við sváfum út fengum góðan mat hjá mömmu hennar Caroline. Eftir það fórum við að skoða kirkju sem er reist á hæð fyrir ofan Moulin Rouge og heitir Sacre Coeur Basilique. Þessi kirkja var þokkalega töff og þurftum við að labba umm nákvæmlega 190 tröppur til að fara þangað upp og sáum við yfir alla París þaðan. Það sem er svo gaman í þessari borg er bara að labba eitthvað og sjá hvað gerist og gerðum við það í gær og fundum við þetta týpiska franska sem mar sér í bíómyndum. Teiknarar og veitingastaðir út um allt.
Í dag fórum við svo í Notre Dame og fengum að fara frítt upp í turninn þar afþví að stelpan hélt að Ísland væri í evrópu sambandinu en eins og við vitum er það ekki satt.

Séð úr Notre Dame
Eftir Notre Dame ákváðum við að halda áfram að labba og labba og labba og labba og fundum við þá en eitt safnið sem er samt eiginlega bara grafhýsi fyrir fræga frakka eins og Victor Hugo og fleiri.Þegar við fórum þaðan fórum við út í rigninguna og löbbuðum meira. 
Þá erum við eiginlega kominn aftur þar sem ég byrjaði að skrifa hér fyrir ofan og Caroline er kominn og erum við að fara eftir smástund. Þannig að ég skrifa eitthvað meira síðar..

...þar til næst 

Jakob Guðnason

Skrifa athugasemd

Könnun

Hvorum okkar saknið þið meira?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit