Komnir til Bolzano
30. nóvember 2009 klukkan 11:13
Jæja það ættu allir að vita það núna en við erum komnir til Bolzano á Ítalíu. Ferðin hingað var bara hin fínasta þrátt fyrir að hafa þurft að vakna fyrir allar aldir á föstudaginn og taka lestina uppá flugvöll. Þaðan flugum við svo til Mílano og fengum einn ljótasta bíl sem ég hef á ævi minni keyrt. FIAT eitthvað drasl. Svona lítill sendibíll eins og Caddy.
Frá Mílanó keyrðum við á þessu ógeði til Bolzano og var það pínu erfitt því ég var svo þreyttur en við komumst heilir þangað og hittum Gísla og fórum svo á Íshokkí leik hérna í næsta bæ.
Á laugardaginn spiluðum við svo fótbolta í næstum því 2 tíma og má segja á íslenska þríeykið hafi verið maður leiksins því að ítalirnir voru dolfallnir yfir spilamennsku okkar.
Eftir góða sturtu og smá mat var stefnan tekin niður í bæ og fórum við ofan í kjallara borguðum 15 evrur inn og drukkum eins og við vildum. Þegar við strákarnir erum komnir í ákveðinn fasa verðum við að gera eitthvað skemmtilegt og var það í þetta skipti þannig að ég fór uppá svið tók micrafóninn og kallaði á Óskar og við tókum 3 lög við góðar undirtektir. Þegar við ætluðum svo að taka 4 lagið kom einhver gaur og slökti á okkur því að það átti að loka kjallaranum.
Eftir svona laugardagskvöld var ekkert hægt annað en að taka því mjög rólega á sunnudeginum og gerðum við lítið annað en að spila Guitar Hero og glápa á bíómyndir, og sýnist mér allt stefna í eitthvað svoleiðis í dag því að það er skítaveður úti.
...þar til næst

Jakob Gušnason