Ítalía er töff staður
08. desember 2009 klukkan 12:07
Já við erum búnir að vera hérna á Ítalíu í tæpa eina og hálfa viku og hér er lífið bara snilld. Það er ekki hægt að segja að við séum búnir að gera geðveikt mikið en samt búnir að áorka alveg helling. Hér er stuð að djamma með Gísla og Gísli er einn besti gestgjafinn hérna á Ítalíu, Við kíktum á sunnudaginn í Obereggen sem er skíðasvæðið hérna rétt hjá og það var sko stuð. Ég keypti mér snjóbretti um daginn og notaði það í fyrsta skipti þarna og ég er ekkert sá albesti á bretti í heiminum en samt betri en Gísli. Ég prufaði skíðin hans Gísla og vá hvernig getur fólk verið í skíðaskóm allann daginn.
Skíðamenningin hérna úti er aðeins öðruvísi en heima því hér er bar við hverja einustu lyftu og var það ekkert að hjálpa okkur þegar við vorum að renna okkur til baka nokkra kílómetra á þröngum stíg í kolniðarmyrkri eftir svakalegt opnunarpartí skíðasvæðisins....
Gísli er núna að reka á eftir mér að ég fari að finna mig til því við erum að fara klifra einhversstaðar hérna í nággrenninu eða eiginlega alveg hálfa leiðina til Sölden.
....þar til næst

Jakob Guðnason