Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity. Funny Images, Friendships

Klukkan

Komnir til Sölden. Minni árekstrar við brekkurnar á hverjum degi

15. desember 2009 klukkan 17:23
Já þá er kannski tími kominn til að blogga.
Við erum loksins komnir með internetið hérna í Sölden, þannig að nú getum við farið að bögga ykkur heima á klakanum hvað það er mikill snjór hérna og hvað það er gaman að renna sér niður brekkurnar.
Við mættum til Sölden síðasta föstudag og fengum aðgang að herberginu okkar sem er ekkert rosalega stórt en 2 rúm fullt af skápum eldhús og svona flotterí. Við gerðum nú voðalega lítið á laugardeginum annað en að hitta yfirmannin okkar og fá passann okkar og svona. Sunnudagurinn var heldur líflegri og fórum við þá í fjallið og renndum okkur á brettunum eins og við gátum og fórum upp í 3000 og eitthvað metra hæð. Strax á sunnudagskvöldið hittum við fyrsta fólkið hérna í Sölden voru barþjónar á bar sem heitir Kuckkuck og er fyrsti barinn sem maður sér þegar maður rennir sér niður frá Giggijoch. Óskar spjallaði við mömmu sína vel kominn í glas og það var æðislegt að hlusta á það samtal. 
En ég veit ekki hvað ég á að segja meira annað en að okkur vantar potta pönnur til að elda mat sem er ekki örbylgjumatur...
... en þar til næst

Jakob Guðnason

Skrifa athugasemd

Könnun

Hvorum okkar saknið þið meira?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit