Þokkalega er bústaður á morgun
...þar til næst
Já hvað það er nú gott að vera kominn með blogg síðu, þannig að ég er alveg að missa mig í blogginu. En allavegan, í dag ákvað ég að setja hitablásara í bílinn minn á meðan ég var í vinnunni til þess að þurka bílinn að innan, og ég er að verða geðveikur á því að finna út hvar hann lekur inn. Ég er ekki að finna það. Eins er það bara þannig að ég væri alveg til í að losa mig við bílinn og fá mér annan nýrri sem bara bilar ekki. Ætli maður verði ekki bara að taka sér lán fyrir því....úff vá peningar crap. ég ætla mér að eyða hellings peningum í ár. Nr. 1 X-Games í LA = ca. 190 þúsund. Nr. 2 Nýr bíll = ca. 1 milljón Nr. 3 Fartölva = ca. 150 þús. Já þetta er bara svona stórir hlutir sem ég ætla mér að gera...Það er eins gott að fara spara strax og telja dósir...
En hafiði pælt í því hvað veðrir var fáránlegt í dag. Rigning, snjól ( snjór og sól á sama tíma ) þurt heitt kallt. Þetta var bara alveg fáránlegt. Ég held að við höfum fengið sýnishorn af öllum veðrum í dag.
En þegar maður er kominn út í það að tala um veðrir þá er kominn tími til að stoppa í dag.
...þar til næst
Mikið ótrúlega var gaman að fara út í morgun og það var bara allt hvítt. Það var svo bjart og gott að maður varð bara hress á því að labba út. En núna er hann allur að fara :( crap. En maður grætur það ekki alveg. En það sem maður grætur er þessi blessaða skattskýrsla guð minn góður hvað þetta þarf að vera leiðinlegt. og mikið vesen.
Vá hvað næsta helgi verður góð. sumarbústaður á föstudaginn svo þarf maður náttúrlega að koma í bæinn á laugardeginum til að kjósa með stækkuðu álveri og fara á árshátíð Mest á Gullhömrum með Óskari, Ásu og Guðný og svo fara eftir hana aftur í bústaðinn...Hehehe þetta verður alveg geðveik helgi vonandi.
Skrifið í gestabókina!!!
En hey þar til næst.....