Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Meanwhile in parallel universe Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity.

Klukkan

Kallinn bloggar frá Þýskalandi í brakandi sól og hita

06. apríl 2009 klukkan 17:08
Þegar ég er að skrifa þetta er klukkan 19.15 og það er 18 stiga hiti úti. Fuglarnir syngja lestin fer framhjá bænum og sólin skín ennþá í augun á mér. Ég sit í kastalagarðinum í Rieneck og er að skemmta mér alveg fáránlega vel á IMWe. Vá hvað ég var búinn að gleyma hvað Keiler er góðu....

....En hey ég ætla að fara tana hahahaha
 sjáumst..


....þar til næst
Jakob Guðnason

Gleðileg jól fólk

24. desember 2008 klukkan 19:06
Já allir gleðileg jól og hafið það gott um jólin og ég vona að það séu allir jafn saddir og ég eftir góða matinn sem þið fenguð...

Svo sjáumst við bara hress og kát hjá litla eftir kl 02.00 á nýjársnótt
Jakob Guðnason

HAHAHAHA

25. september 2008 klukkan 21:29
Jæja núna rétt áðan þá breytti ég statusnum mínum á Smettisskruddunni (Facebook) úr Single í It´s Compicated bara til að tékka viðbrögðin..Bara svona fyrir þá sem lesa þessa síðu þá er ekkert flókið í gangi núna hjá mér heldur er þetta bara saklaus tilraun
Jakob Guðnason

Mynd dagsins

08. september 2008 klukkan 13:10
Vorum að drepa tímann í Þórsmörk
Jakob Guðnason

Já sæll eigum við að ræða það hvað það er langt síðan ég kíkti hingað inn

01. ágúst 2008 klukkan 16:27
Já það er nokkuð langt síðan ég kíkti hingað inn og satt best að segja var ég eiginlega bara búinn að gleyma því að ég væri með þessa síðu. En ég ætla heldur ekkert að fara segja frá öllu sem ég er búinn að gera síðan ég bloggaði síðast en í grófum dráttum er ég búinn að gera þetta.
  • Landsmót skáta Akureyri
  • Hálendisgæsla á Kili
  • Vinna
  • Vinna
  • Klessa bílinn minn
  • Fá nýjan vinnubíl
  • Spila í brúðkaupi
  • Spila í 50 ára afmæli
  • Djamma
  • djamma
  • djamma
  • Vormót
  • Landnemamót
  • vera veikur
  • Heiti lækurinn í Reykjadal
Já þetta er svona það basic sem ég er búinn að vera gera. Annars er ég ekkert sáttur við það að vera veikjast núna á föstudegi verslunarmannarhelgarinnar. Ætla að vera heima í dag og ná þessu úr mér.

Jakob Guðnason

Mynd vikunnar

25. apríl 2008 klukkan 19:17
Jakob Guðnason

Mynd dagsins

17. apríl 2008 klukkan 17:40
Já já ég veit þú ræður hvað þú heldur
Já svona er þetta hjá okkur í bílaflokk það þarf einhver að stýra
Jakob Guðnason

Hey hey hey sko nei nei nei

09. apríl 2008 klukkan 21:00
Í gær var ég á bol í vinnunni og í dag þurfti ég barasta gönguskó úlpu og húfu....Hey nei ég nenni þessu ekki lengur á ekkert að fara koma vor í þetta eiginlega....Eru veðurguðirnir bara að stríða okkur hérna á klakanum trekk í trekk....
Í sögubókunum í framtíðinni verður árinu 2008 minnst sem árinu með 10 vor, 29 vetra,15 hausta og kanski 1 sumar ég skal uppfæra þetta í lok ársins.

En hvað um það, það hlýtur að koma vor aftur á morgun. Eða það lítur út fyrir það. Síðustu helgi var ég á Akureyri skrapp aðeins á skátaþing og fór svo að málaði bæinn rauðann. Mikið helvíti getur verið kallt þarna á Akureyri shitturinn titturinn mellan og hóran.

svo að lokum TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ANNA KAREN

...þar til næst
Jakob Guðnason

Fleiri myndir á síðuna og nýr bíll

04. apríl 2008 klukkan 00:15
Já hey ég er búinn að kaupa mér nýjan bíl loksins þannig að ekkert vento vesen framar. En svo setti ég inn nýjar myndir frá IMWe áðan þannig að þið hafið haug til að skoða.
Annars er það bara að skella sér á Akureyri á morgun á skátaþing.

...æi shit ég nenni ekki að blogga þannig að...
...þar til næst
Jakob Guðnason

Tilraun að ferðasögu IMWE

27. mars 2008 klukkan 21:55
Jæja ég skal reyna að segja ykkur ferðasöguna frá IMWE í stuttu máli.
Þetta byrjaði allt með því að Jón Þór hringdi í mig og spurði mig hvort ég vildi ekki að fara með honum á skátamót í Þýskalandi sem heitir IMWE, ég var svona á báðum áttum og jú ég lét til leiðast og ákvað að skella mér með bara. Við fórum uppá flugvöll að morgni sunnudagsins 16 mars og hittumst þar allur íslenski hópurinn í góðum fíling.. ég var með smá svona ( shit hvað er ég búinn að koma mér í) en ákvað bara að fara út með opið hugarfar og hafa bara eins gaman og hægt var. Þegar ég svo mætti í kastalan sem mótið var í þá breyttist allt saman....þarna var ég kominn á minn stað. Fólkið sem tók á móti manni var fjörugt og skemmtilegt.
Fyrsti dagurinn var spes og mar var að reyna átta sig á hlutunum reyna að kynnast fólki og svona. En strax í kvöldmatnum sá ég stelpu sem var pínu sæt en var ekkert að pæla neitt mikið meir í því. Um kvöldið ákvað ég að velja mér workshop sem var tónlist og vorum við að spila tónlist alla morgna mótsins.
En oki ég get ekkert skrifað hvern dag því ég man ekki alveg hvaða dagur er hvað þannig að ég kem bara að aðalatriðunum hér eftir :)
Eitt kvöldið var ulternative medetation sem þýddi bara að það var heljarinnar diskótek í einu herbergi kastalans. Þar var þessi stelpa aftur að dansa og sá ég að hún sagði við vinkonu sína eithvað og benti á mig.....því næst stukku þær á mig og dönsuðu við mig eins og þær ættu lífið að leysa. Ég skildi voða lítið í þessu dansaði bara með og fór svo og náði mér í meiri bjór. Þegar ég kom upp aftur sagði vinkona hennar mér að drullast aftur inn því hin væri að bíða eftir mér....hey vúhú ég var game og úr því byrjaði þetta skrýtna samband mitt og hinnar Nezu frá Slóveníu.

Eitt kvöldið voru svo tónleikar sem ég spilaði 2 lög á og shit ég hef bara aldrei skemmt mér jafnvel á tónleikum. Ég var í litlu bandi sem spilaði órafmagnaða útgáfu af laginu Inside með Vertical Horizon og svo Somwhere over the Rainbow með Nezu eldri...

En oki ég nenni ekki að skrifa meira.. þannig að ég ætla bara að segja að ég hef aldrei skemmt mér jafnvel á einni viku og þarna

Jez te ljubim Neza

...þar til næst
Jakob Guðnason

Könnun

Hvorum okkar saknið þið meira?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit