Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Meanwhile in parallel universe Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity.

Klukkan

Ich bin eine gummimate

24. mars 2008 klukkan 23:53
Já þá er ég kominn heim og er ég svo þreyttur að ég nenni ekki að skrifa ferðasöguna. En ég setti inn nokkrar myndir aðeins 44 af svona 1000 myndum sem ég er með og mun ég vinna í því hægt og rólega að setja þær inn..

And for you my Imwe friends I putted some special pictures on the internet my friend. And see you all next year...You can see the photos here to left if you click FLEIRI MYNDIR.

...þar til næst
Jakob Guðnason

Ich bin eine geile drecksau

20. mars 2008 klukkan 16:15
Jæja þá kemur blogg fyrir ykkur börnin mín góð...Ég er hérna úti í Rienek í Þýskalandi á helvíti sikemmtilegu skátamóti ég hef bara aldrei skemmt mér jafnvel á ævinni...Mar er búinn að kynnast fullt af skemmtilegum útlendingum sem eru svo miklir snillingar og ýmyndunaraflið í þessu lið hérna er geggað. Við erum að tala um vá flipp dauðans.....

.en hér er veðrið bara fínt og rigning og bara heitt og gott...eða mér finnst heitt en útlendingarnir allir eru að frjósa í hel haha....en ég nenni ekki að blogga meira það kemur bara ferðasaga með myndum einhvern tíman þegar ég kem heim....

þýðiingin kemur ekki í þessu bloggi nema kanski að óskar litli lesi þetta og comennti :)  

...þar til næst
Jakob Guðnason

Kominn með sponsor

09. mars 2008 klukkan 01:55
Jæja þá er mar kominn með sponsor á síðuna...Helvíti gott að vera með svona sponsor sem sér bara um mann alveg. En ég lofaði að setja inn logoið hjá þessu companyi hérna á bloggið þannig að ætli það sé ekki best að vera ekkert að skrifa of mikið.

Kubbur film


Jakob Guðnason

Jæja þá best að blogga aðeins smá

03. mars 2008 klukkan 18:41
Já síðusta vika hefur verið strembin og hef ég ekki haft neinn tíma til að vera í tölvunni að blogga. En alla síðustu viku hef ég verið að taka upp bílaflokksvideoið sem er hér fyrir neðan og klippa og vinna í vinnunni minni og annað sem ég geri. En vá þetta video tók smá tíma...Við tókum allt upp í síðustu viku og byrjaði ég eithvað að klippa í tölvunni minni en hún einfaldlega er bara ekki nógu góð til að klippa almennilegt video í henni þannig að ég fékk að fara heim til Kristjáns bró og klipti þetta í ofurvélinni hans...ég var ekki nema til 8 um morguninn að klippa fór svo að horfa á barnatímann með frænkunni minni og fór svo á aðalfund hjálparsveitarinnar...pínu þreyttur þar...svo tók bara við árshátíðinn og ég get svo svarið það ég hef aldrei skemmt mér jafnvel á ævinni áður þetta var geggjuð árshátíð....

en videoið má horfa á með því að fara á www.youtube.com/jakobgudnason

...þar til næst
Jakob Guðnason

Aðeins lengur úti að leika en ég ætlaði að vera.

25. febrúar 2008 klukkan 00:13
Já ég fór út að fjórhjólast í hádeginu með strákunum í BSH og skruppum við uppá Kleifarvatn og Breiðdalinn heim og í gegnum Hvaleyrarvatn. Þegar við komum þangað voru þar björgunarsveitarmenn frá BSH og Eiríkur F á Garðari 1 að reyna að ná upp 2 krossurum sem fóru ofan í vatnið fyrr um daginn. Þá ákváðum við bara að fara hjálpa til og við náðum ekki hjólunum upp fyrr en um 11 leytið. Þvílíkt ves.

En ég er farinn að sofa núna að reyna að ná úr mér kuldanum..

...þar til næst
Jakob Guðnason

Ég gerði það ekki

24. febrúar 2008 klukkan 12:50
Mér er alveg  sama hvað fólk veit og hvað fólk veit ekki. En ég heyrði það í gær að þær sögur gangi um mig að ég á að hafa sofið hjá öðrum stelpum á meðan ég var með Rakel..Það er ekki satt. Það sm gerðist hjá mér og Rakel á sínum tíma er á milli okkar skiptir engu djöfulsins máli. En ég var ekki með öðrum stelpum meðan ég var með Rakel.
Jakob Guðnason

Sumir myndu segja að ég væri klikk

05. febrúar 2008 klukkan 19:21
Já sumir myndu segja að ég væri klikk en kem að því seinna í þessu blogi:) Um helgina var bara djammað og haft það notarlegt. Föstudaginn fengum ég og Biggi okkur bjór hérna heima og Stóri Ó var hérna með okkur. Á laugardaginn fór ég svo uppá Skjaldbreið með HSG og var ég á fjórhjóli og var það bara helvíti gaman. Laugardagskvöldið var svo haldið á Hressó í 30 ára afmæli hjá Ingó fullt af bjór og búningaþema.Þar var djammað langt fram eftir nóttu og tekið það rólega á sunnudeginum.
Fór reyndar á brúðgumman með mömmu og pabba hún var djöfulli góð.
En í gær gerðist ég það klikkaður að mjallarbóna allan vinnubílinn. Shit það tók á en eftir það mjallarbónaði ég Patrol með dyggri aðstoð Heiðars og svo þegar hann var ready tók ég Hiace. Sht ég var búinn í hendinni eftir þetta.
En ég er farinn í bíó.
...þar til næst
Jakob Guðnason

Myndir

28. janúar 2008 klukkan 06:20
Hey ef þið voruð ekki búin að taka eftir því þá setti ég inn myndir úr partyinu hjá Selmu og Hjalta inná síðuna....Klikkið bara á fleiri myndir

...þar til næst
Jakob Guðnason

Seint í vinnuna og keyrði hægt

25. janúar 2008 klukkan 19:39
Já eins og ég sagði síðast þá var ég orðinn þreyttur á roki og rigningu en núna var rok og snjókoma :)
Ég fór ekki að vinna fyrr en eithvað um 11 leytið í morgun og fór ekki til Keflavíkur fyrr en eithvað um 12.30 vegna bilaðs veðurs í Keflavík.
Hvað um vinnuna ég nenni ekki að tala meir um hana. Á morgun verður nóg að gera hjá mér og ætlar ættin mín að koma í súpu og brauð í hádeginu því mamma og pabbi heimtuðu að ég myndi bjóða fólkinu í matg í tilefni afmælis míns en ég veit það að þau vildu bara halda kveðjuparty fyrir sig því þau eru að fara til útlandana á morgun.
Svo þegar það er búið er ekkert annað en að fara finna sér fín föt fyrir árshátíð Icelandair og svo er afmælisveislan mín sem Selma og Johnny ætla að halda fyrir mig og sig líka reyndar.

En ég nenni ekki að blogga meira.
...þar til næst
Jakob Guðnason

Æ hvað ég er orðinn þreyttur á roki

22. janúar 2008 klukkan 17:24
Já ég er orðinn pínu þreyttur á þessu djö**** roki. Einn kostur við það svona á morgnanna þá getur mar leyft sér að liggja aðeins lengur í rúminu þar sem það er gjörsamlega fáránlegt að vera eithvað að keyra til Keflavíkur í svona veðri. Gallinn við það er sá að dagurinn verður viðbjóður í staðinn því það safnast bara upp vitleysan.

En hvað um það ég sit hérna í gömlu vinnunni minni niðrí Mest að fara reyna að skrifa eithvað um Óskar því hann bað mig að skirfa eithvað sætt um sig. Hummi hummi hummi . Sætt sætt æi það er eitthvað gay við þetta :)
En já afmælið mitt verður þá bara aftur hjá Selmu þetta árið. Á laugardaginn mæta með hatt eða hárkollu:)

...þar til næst
Jakob Guðnason

Könnun

Hvorum okkar saknið þið meira?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit