Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Meanwhile in parallel universe Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity.

Klukkan

Jeppast og góður fyrri hálfleikur

19. janúar 2008 klukkan 22:26
Eigum við að ræða þetta eithvað...Mig langar að taka markið sem Logi Geirs skoraði á síðustu sekúndu fyrri hálfleiks og hengja það uppá vegg hjá mér.

En ég byrjaði daginn snemma í dag og fór að jeppast aðeins uppá Hellisheiði kíkti inní Dalakot þar var Kotasæla í gangi og svona svo fór ég að horfa á leikinn heima hjá litla og ég segi að ,,strákarnir okkar" voru bara helvíti góðir og vona bara að þeir vinni á morgun.

En á morgun ætla ég að fara á Langjökul að leika mér aðeins og núna held ég að það sé kominn tími að ég fari og kaupi mér bara jeppa og hætti þessari vitleysu.
ohh náladofi í puttanum skrýtið nenni ekki að blogga með hann þannig.

...þar til næst
Jakob Guðnason

Vá hvað það er leiðinlegt að hanga heima

15. janúar 2008 klukkan 12:20
Eruð þið að grínast hvað það er leiðinlegt að hanga bara heima hjá sér af því að maður getur ekki farið í vinnunna. Ég var heima í allan gærdag þangað til að Anna Birna kom og bjargaði deginum og sótti mig og við fórum og fengum okkur að borða og fórum í bíó. Helvíti gott að láta bjarga sér svona. Nú ætlar Óskar stóri að koma sækja mig á eftir til að fá okkur að borða Kenny, ohh það verður gott.
En svo eru ýmsar pælingar með hvað mar á að gera um helgina og ein var að fara á Vatnajökul, veit ekki hvernig það verður, hitt er að fara á Kotasælu og vera með Flyfoxið með Óskari stóra, og svo hitt bara að fara djamma og leika mér.
En ég held að það sé farið að styttast í Stóra þannig að ég ætla að fara byrja labba upp það tekur mig jú alveg 5 mín að komast upp í andyri.

...þar til næst
Jakob Guðnason

Djöfull er ég góður á snjóbretti

14. janúar 2008 klukkan 00:39
Ég er sko ekkert að grínast með það að ég held að ég sé undrabarn á snjóbretti því ég fór um helgina á snjóbretti í annað skipti á æfinni í svona fjalli í alvöru skíðabrekku. Og ég var ekkert að gefa hinu snjóbrettafólkinu eftir þangað til að ég hrundi svo gjörsamlega á andlitið í einu stökkinu og meiddi mig nú pínu. Þá ákvað ég bara að það þýddi ekkert fyrir mann eins og mig sem væri ekki alveg sá klárasti á brettinu að vera ekkert að reyna að stökkva svona og fór bara að bruna niður brekkurnar. Þangað til að kabúmm ég hrundi á hausinn á svona 40 km/klst hraða og skall með hausinn í ( svosem enginn skaði skeður með hausnum) en fucking hnéð á mér er í rúst. Ég get varla labbað. Eftir það fór ég nokkrar rólegar ferðir niður og mér fannst það ekkert gaman því að allir hinir sem ég var með voru alltaf lang langt á undan mér og komust á undan mér aftur í stólinn. Þá fór ég líka bara og fékk mér kakó og las fréttablaðið.

"En svona fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um hvaða ferð ég er að tala um þá fór ég á Akureyri um helgina með Eiríki, Eiríki og Eiríki, Eddu, Gísla, Írisi og Heiðari og var planið að renna sér eins oft niður brekkurnar í Hlíðarfjalli og hægt var og svo að detta í það eins mikið og hægt var um kvöldið. Við fórum á föstudaginn á Land Rover Discovery sem B&L eiga norður og mikið djöfull var mikið pláss fyrir okkur feitabollurnar sem sátum afturí, vorum kominn eithvað um miðnætti norður og fórum bara snemma að sofa. Vöknuðum svo snemma um morguninn til að fara í fjallið og þið vitið hvað gerðist þar."

Eftir ég var búinn að drekka kakóið mitt og lesa fréttablaðið komu svo hinir fljótlega og tjáðu mér það að við ætluðum að skella okkur í Akureyralaug og fara svo á Greifann og þar fékk ég mér 400 gr. steik sem heitir Besti bitinn og var þetta bara eitt besta kjöt sem ég hef smakkað og sagði ég óvart þegar ég pantaði að ég þyrfti pottþétt að fá ábót, og guð minn góður ábótinn sem ég fékk var 200 gr. steik plús stór kartafla en ég kláraði þetta nú með bestu lyst.
Eftir þetta var haldið í party hjá Hrafnhildi og félögum í íbúð sem Baugur á held ég og þar var djammað vel og lengi þangað til að hnéð á mér leyfði ekki meir og ég, Íris og Gísli fórum heim og hinir fóru í bæinn.
Í dag var ég svo bara með Heiðari í bænum og fengum við okkur Brynjuís sem ég segi að sé ofmentnasti ís á landinu, og hitti systur hans og svona. Bara helvíti góð helgi fyrir utan 2 góðar byltur:)

...þar til næst
Jakob Guðnason

Hey ég sá sól

09. janúar 2008 klukkan 12:47
Já ég sit hérna í Keflavík að bíða eftir því að geta lagt af stað aftur í bæinn með vörur og ég held að kraftaverk hafi komið hérna. Ég sá sól í Keflavík í fyrsta sinn síðan ég veit ekki hvenær. Vá það er skrýtið að sjá hana núna, síðustu mánuði hefur yfirleitt bara verið rigning og rok og skýjahula hérna yfir en þó aðalega bara rok og rigning:) Voðalega finnur maður hvað sólin gleður mann svona í miðri viku. Sólin bjargaði deginum.

En alveg hreint ótrúlegt hvað einn svona linkur á b2 lætur marga skoða síðuna hehe. En ég held að málið sé að fá bara Tarantino til að vera sölumaður í næstu flugeldasölu.
Við erum allavegana búin að ganga frá öllu því sem viðkemur flugeldasölu niðrí hjálparsveit ohh hvað það er þæginlegt að þessi törn sé búin, nú er mar bara afslappaður á kvöldin og er ég að spá í að skella mér með nokkrum félögum mínum bara á Akureyri til að slappa af og fara á bretti og svona. Ég held að það verði nú samt eithvað skrautlegt að fara í bretti því ég hef bara einu sinni farið á bretti og það eru 2 ár eða eithvað síðan ég gerði það síðast, ég reyndar datt ekkert allt of oft þá en ég hlýt að detta oftar núna :)
En hvað því líður þá held ég að allt sé bara í geggjuðum gír núna.

...þar til næst
Jakob Guðnason

Jæja viljiði fá eithvað smá blog.

06. janúar 2008 klukkan 02:34
Já hvernig væri þá að byrja á því að segja GLEÐILEGT ÁR og takk fyrir það gamla og allt það þarna :) Ég er búinn að vera hress takk fyrir að spyja og bara selja flugelda. hehe.
Ég var að reyna að bakka með beyslisvagn í gær og shit það er pínu erfitt sko. Hélt ég myndi rífa af mér hárið þegar ég var að því. En þetta kemur vonandi hjá manni.
En svo er hérna smá bútur úr frétt í Fréttablaðinu 4. janúar

"Fram að veislunni voru þremenningarnir á heimili Eyþórs og horfðu meðal annars á áramótaskaupið. Roth og Tarantino skildu reyndar ekkert hverju gert var grín að en létu sig hafa það. Að því loknu fóru þeir út fyrir og sprengdu flugelda fyrir tugi þúsunda sem þeir keyptu hjá Hjálparsveit Skáta í Garðabæ. Og létu óveðrið ekki skemma fyrir sér. "Þeim fannst þetta alveg ótrúlegt og skemmtu sér konunglega við að skjóta upp rakettum og kveikja í stórum bombum," segir Eyþór.""

Hjálparsveit skáta Garðabæ selur öllum þeim stærstu flugelda skal ég ykkur segja. :) Enda tók ég þetta að mér að redda þessum að þeir myndu kaupa hjá mér flugelda.

En svo er það bara kanski að fara á Akureyri næstu helgi á bretti það er einhver pæling en ég nenni ekki að blogga meira í bili

...þar til næst
Jakob Guðnason

MYNDIR

26. desember 2007 klukkan 15:57
Jæja ég veit ég sagðist ætla að fara í blog frí en þeir sem þekkja mig vita það að ég get ekki tekið mér frí frá neinu eða hætt neinu alveg. Þannig að ég nottla varð að hafa eithvað að gera á milli þess að vera glápa á DVD ið sem ég fékk í jólafjöf og ég var að éta kökur og ís og kjöt og svoleiðis í jólaboðum þannig að ég ákvað nottla bara að drífa mig í því að setja inn myndir á netið og bætti við link hérna vinstra megin á síðunni sem heitir fleiri myndir og þar ætla ég að setja myndir inn svona þegar ég hef myndir til að setja þarna inn.
En jú jólin voru bara allt í lagi, góður matur góðar gjafir og boðskapurinn enn á sínum stað í þessu öllu saman. En svo á morgun tekur bara flugeldastússið við og mar flytur nánast bara uppí hjálparsveit til að þetta gangi nú allt saman upp.
En já fyrstu myndirnar sem ég set inn eru ú ferðinni minni þegar ég fór til Guðnýar, og svo til Óskars og svo loks til Selmu og Johnny´s. Þannig njótið þetta er haugur af myndum...


...þar til næst
Jakob Guðnason

Gleðileg jól aftur

24. desember 2007 klukkan 18:14

 Gleðileg jól
Já Gleðileg jól þarna allir saman og farsælt komandi ár. Vona að

þið hafið það gott yfir hátíðirnar og borðið nóg af nammi og

kökum og svona
Jakob Guðnason

Gleðileg jól og æi þarna þið vitið

21. desember 2007 klukkan 01:20
Já ég ætla að fara í bloggjólafrí. En ég ætla samt að óska öl lum gleðilegra jóla og farsæls þarna ár og svona. Ég samt veit ekki hver sagði að jól væru hátíð því þau eru svo langt frá því. Ég veit ekki afhhverju fólk getur ekki bara slappað aðeins af í þessu djöfulsins stressi og bara haft jólin eins og páska eða eitthvað. ég meina common.
En oki
farinn í bloggfrí

...þar til næst
Jakob Guðnason

Fjúkandi kerrur og skilti

13. desember 2007 klukkan 22:57
Já þetta er búin að vera meiri vikan hingað til og ekki er hún að skána neitt. Mánudagskvöld var óveðurútkall kjallinn var líka í fréttunum á þriðjudeginum, en svo í gær var aftur útkall og var ég búinn að vera vakandi í 34 tíma þegar ég tók mér smá blund. Það var bara helvíti gaman í gær í þessu útkalli, fengum nóg að gera eins og fljúgandi vélsleðakerrur, fljúgandi skilti sem lenti á 3 bílum og skemdi nokkra í viðbót, hrynjandi svalarhandrið og svona. Nún er ég svo að fara aftur í kvöld eða meira svona í nótt þegar hvellurinn kemur aftur. Þetta verður þá bara svefnhelgi :) En ég veit ekki hvað ég á að vera segja mikið nema það að þið eigið að kaupa af okkur jólatré og flugelda. Getið þið ímyndað ykkur hvað kostar fyrir eina hjálparsveit að vera í svona útkalli í 8 tíma. Allavegana þá skiljum við öll bönd, strappa, nagla og dót eftir þar sem við notum það.
En ég er bara farinn að bulla eithvað :)

...þar til næst
Jakob Guðnason

Váááááááááááááá hahahah RAP

11. desember 2007 klukkan 23:38

Hér í skólanum er skemmtilegt að vera
það er skrambi margt sem hér er hægt að gera
það er ýkt það er kúl og algjört æði
það er ýkt ef við röppum landafræði


Öll í einu!
Öll í einu!

Ef við stígum jafnt og þétt verður stærðfræðin svo létt
bæði móðurmál og saga verður æði alla daga
Ef við klöppum saman höndum, og á höfðinu við stöndum
Við verðum töffarar í framan við að taka sporið saman.
A púmm tcha a púmm púmm tcha


Rapp, skólarapp
Inní skólastofunni okkar heyrist hlátur og klapp
Rapp, skólarapp
Nú röppum við því kennarinn á klósettið skrapp.


Við erum öll að reyna að rappa,
þessi rosa krakkastappa
Við höfum langt á milli lappa
Gerum limi alla slappa


Rapp, skólarapp
nú er tími til að rappa, já, og það var mikið happ


Hvað er 2svar sinnum 4, hvað er 3svar 3?
Hvort er skólastjórinn nagdýr eða jórturdýr?
Veistu hver sagði Hlíðin er svo fögur?
Veistu hvað gerðist 44?


Hvað er langt á Húsavík?
Hvað er óákveðinn greinir?
Veistu að Ingólfur og Hjörleifur þeir komu ekki einir?


Suður í afríku eru ljón, en í Kína eru grjón
Hvað er vatnajöklull hár?, sýndu mér hvað þú ert klár
Við syngjum púmm tsja a púmm púmm tsja


Rapp, skólarapp
Inní skólastofunni okkar heyrist hlátur og klapp
Rapp, skólarapp
Nú röppum við því kennarinn á klósettið skrapp.


Við erum öll að reyna að rappa,
þessi rosa krakkastappa
Við höfum langt á milli lappa
gerum limi alla slappa


Rapp, skólarapp
nú er tími til að rappa, já, og það var mikið happ


Veistu að Kýrnar hafa fligú, fligú, vömb og kepp?
Hvar á landinu má finna Þykkvabæjarhrepp?
Veistu hvar höfuðborgin heitir Róm?
Veistu hvar fólk gengur ekki í skóm?

Hvað er fligú fligú blóma fligú?
Fligú fligú fligú fligú fligú fligú
Hvað er stærst og breiðast, hæst og dýpst, lengst og lægst á þessum hnetti?

Hvað er fjórum sinnum sjö
X Y Z Þ Æ Ö
Svona lærum við og lærum
Skiljum öll af lífsins fyrirbærum

a púmm tcha a púmm púmm tcha


Rapp, skólarapp
Inní skólastofunni okkar heyrist hlátur og klapp
Rapp, skólarapp
Nú röppum við því kennarinn á klósettið skrapp.


Við erum öll að reyna að rappa,
þessi rosa krakkastappa
Við höfum langt á milli lappa
gerum limi alla slappa

Rapp, skólarapp
nú er tími til að rappa, já, og það var mikið happ

RAPP!!



Oki shit ég byrjaði að pikka þetta eithvað inn en gafst fljótlega uppá því fann þennan æðislega texta á netinu ef einhver nennir að fylla inní öll flígú orðin þá væri það geggjað.

en hehe commentið á þetta mar þetta er held ég bara besta blogg sem ég hef sett hérna inn

Jakob Guðnason

Könnun

Hvorum okkar saknið þið meira?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit