Innskráningar kubbur

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Meanwhile in parallel universe Funny Images, The whispering game Funny Images, Dead men, you do it wrong! Funny Images, Statues Funny Images, Funny Striking Resemblance! Funny Images, Taking the opportunity.

Klukkan

Helvíti góð helgi, skítakuldi

09. desember 2007 klukkan 11:15
Já þetta var bara helvíti góð helgi. Föstudaginn var bara mjög góður, það snjóaði temmilega og vinnan var bara fín ekkert of mikið og ekki of lítið. Eftir vinnu fór ég svo uppá skrifstforu Iceandair Cargo í smá fordrykk fyrir jólafylleri ITS og Icelandair Cargo á Rúbín. Djöfull er þetta flottur staður þarna í Öskjuhlíðinni, þegar ég labbaði inn langaði mig bara að klifra eftst í klettana sem eru þarna inn þetta er heavy svalt. Svo fórum  við á Vínbarinn shet ég var yngstur þarna inni, En andskotinn konurnar fóru svo að tala um Saflát. Mig langaði svona létt ekkert að tala um það við þær en oki þær bara urðu að fá að vita hvað þetta var. Svo nennti ég ekki að vera þarna svo ég fór til Önnu Birnu og hékk þar eithvað framm eftir nóttu.
Í gær var ég svo bara að leika mér sem jólasveinn og fór á jólahlaðborð Fjarðarpóstsins og hliðarfyrirtækja. Þetta fjölmiðlaveldi sem þetta verður eftir nokkur ár þá munum við fylla Brodway en í gær vorum við bara 9. Bara fín sýning sem var þarna Gerge Micheal í 25 ár. En vá ég nenni ekki að skrifa meira.Þannig að ég ætla bara að fara vinna og svo bara munið commenta :) það er skylda

En vissuð þið það að samkvæmt gömlum Breskum lögum , að ef þú reynir að fremja sjálfsmorð þá er refsingin dauðadómur.

...þar til næst
Jakob Guðnason

Löng röð og snjór meiri snjó

07. desember 2007 klukkan 00:19
Já það var svoldið spes í vinnunni í dag þegar ég var á leiðinni til Keflavíkur síðustu ferðina með útflutning þá fóru nokkrir sjúkrabílar og svona aðrir vælubílar frammúr mér, það var eins og að ég ætti ekki að fá að klára vinnudaginn minn á skikkanlegum tíma því að þegar ég var við miðjan kerskála í álverinu þá gat ég bara sett í handbremsu og þannig var ég í 57 mínútur þangað til að ég fór að lúsast á 5 km hraða. Þannig að ferðin til Keflavíkur frá Hafnarfirði tók jafnlangan tíma og það tekur fyrir mig að elda góðan mat borða hann vaska upp og horfa á fréttir og kanski Spaugstofuna líka.
En oki þá var ég kominn til Keflavíkur og ég var ekkert að stressa mig á að leggja fljótt af stað til baka því ég vissi það að það tæki tíma fyrir þessa röð sem var á leiðinni í bæinn að leysast og svona þannig að ég fór bara í Lazy-boyinnn og horfði á fréttir og fékk mér kakó og kex og spjallaði við fólkið og svona og jú oki þá hugsaði ég að það væri kominn tími til að drulla sér heim það hlyti nú að vera búið að losa veginn, ég meina að það var ekki eins og það væri röð til tunglsins. En viti menn þegar ég átti svona 3 km eftir af tvöfaldakaflanum þá búmm ég var kominn aftur í röð. Common hvað gerði ég af mér til að þurfa fara í allar þessar raðir. En á meðan ég var í þessari röð hefði ég reyndar ekki getað horft á fréttirnar og vaskað upp tímalega séð.

En húff annars var dagurinn ágætur. Þannig að næst á dagskrá er bara að fara fult með flugeldasöluundirbúning og svona og djamma á morgun með vinnuni á Rúbín. bara stuð

...þar til næst
Jakob Guðnason

www.guðnason.is | jakob(@)gudnason.is

03. desember 2007 klukkan 13:15
Hversu svalt er þetta. Að vera með www.guðnason.is og www.gudnason.is . Já ég og Smári keyptum þetta saman og leyfum bræðrum okkar að vera með í þessu. En já þetta kom bara í dag þannig að það er voðalega lítið á síðunni en hún kemur hún kemur.
Annars er ég ennþá að drepast í bakinu og mig vantar einhvern sjálfboðaliða helst heitan kvenmann til að koma með mér í sauna því það er svo leiðinlegt að fara einn í saununa. þannig að þeir sem vilja koma í saunu heima hjá mér bara látið mig vita.

En vissuð þið það að Alexander Graham Bell, maðurinn sem fann upp símann. Gat aldrei talað við mömmu sína eða konuna sína því þær voru heyrnalausar.

...þar til næst
Jakob Guðnason

Hummi hum

29. nóvember 2007 klukkan 23:06
Hummi hum mer finst svo gaman ad blogga i simanum hehe eg hef samt ekkert ad segja
Jakob Guðnason

Mig vantar íbúð

29. nóvember 2007 klukkan 17:39
Já mig bráðvantar íbúð. Ég bara verða að komast út úr því að vera í herbergi sem er allt allt of lítið fyrir mig og dótið mitt. Ef þið vitið um einhverja íbúð í Hafnarfirði þá megið þið láta mig vita.
Annars vill ég óska litla bróðir mínum til hamingju með afmælið því hann er 19 ára í dag drengurinn helvíti gott sko.
En já ég veit ekki hvað ég á að blogga meira nema það að ég er veikur og ég þoli það ekki það er svo leiðinlegt. en ég er að spá í að fara horfa á family guy eða eithvað ég bara blogga meira seinna

...þar til næst
Jakob Guðnason

Simablog

27. nóvember 2007 klukkan 12:34
Ja mig langadi bara ad prufa ad blogga ur simanum minum og tad er greinilega ad virka. Eg er samt ekki ad nenna blogga meira en commentid um hvad eg a ad blogga um næst....tar til næst
Jakob Guðnason

Kominn heim

25. nóvember 2007 klukkan 15:53
Já þá er ég kominn aftur á klakann. Mikið var þetta ógeðslega gaman. Já eftir að ég var í Svíþjóð dró ég Óskar með mér til Danmerkur og gistum við hjá Selmu og Johnny. Það var nú bara helvíti gott að vera í danmörku. En vá ég keypti mér síma á Kastrup og hann er eithvað bilaður ohh. en hey ég nenni ekki að blogga meira í bili ég ætla svo að reyna að sitja inn myndir á næstunni úr ferðinni.
...
...þar til næst
Jakob Guðnason

Hey Svíþjóð hér er ég

19. nóvember 2007 klukkan 16:54
her kommer Pippi langstrom ble ble...hehe ég er hér hvar ert þú?? Það er rosalega fyndið hvað þessir íslendingar hérna vita ekki neitt um Næturvaktina og allt það fynndna sem er að gerast á Íslandi. En hér er bara fínt mætti hérna kl 7.15 í morgun eftir mjög svo erfiða 9 tíma lestarferð svaf allan tíman en samt ekki neitt skiljiði.
Óskar nottla svaf yfir sig þegar hann átti að sækja mig en oki beið nú ekki lengi eftir honum. Svo þegar við komum heim til hans þurfti hann að sýna útlendingunum hvað íslendingar væru klikkaðir og hann gaf mér einn bjór með gullkornunum í morgunmat. Eftir það sofnaði ég nú bara þegar hann var eithvað að læra...ohh gott rúm miðað við það sem ég er búinn að venjast á þessu ferðalagi mínu.
Við fórum svo í skólann hans og svo í bæinn að leika okkur. Helvíti töff borg sko.
en já í megin dráttum þá er þetta bara fínt og ég nenni ekki að blogga meira.

....þar til næst  
Jakob Guðnason

Jamm va mar bara tré

18. nóvember 2007 klukkan 18:35
Hey var ég búinn ad segja ykkur ad tad væru tré í Noregi :) En ja nuna er eg i Oslo ad bida eftir ad fara i lest til Stokholms. Tad var bara helviti fint ad fara i heimsokn til Gudnyar og skemmtum vid okkur bara agætlega ad gera ekki neitt i tessum smabæ. Va tad er svo leidinlegt ad skrifa a svona Norskt lyklabord. Kanski syni ykkur hvad eg mundi skrifa ef eg skrifa bara eins og venjulega. Hø Hø æeg er hæerna æi Oslæo aå bæiåa eftir lestinni _aå er bara helvæiti fæint veåur hæerna.

Myndur tid skilja tetta ;) ?

en oki doki ....
....tar til næst
Jakob Guðnason

Heya Norge þetta er samsæri

16. nóvember 2007 klukkan 14:54
já þá er ég kominn til norge og það er skítakuldi. Er hérna hjá Guðný núna bara að fara drekka bjór. Smá ves því ég er ekki með pin  númerin af kortunum mínum og get ekki notað það í öllum posum. En hér eru ekkert nema bara tré og fjöll og klettar. En ég var 7 tíma í rútu hingað til Guðnýar svo að það er eins gott að hér verði gaman :) Svo á sunnudag eða mánudag fer ég til Óskars í Stokhólmi.

En já ég nenni ekki að bloga meira ég ætla bara að fara leika mér...

...þar til næst
Jakob Guðnason

Könnun

Hvorum okkar saknið þið meira?

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit